29.11.2008
Opnun mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar
Í dag, laugardaginn 29. nóvember, voru opnuð mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar. Úti og Inni sá um útlitshönnun gatnamótanna í samvinnu við Landslag sem sá um landmótun og Verkís sem sá um hönnunarstjórnun, umferðartækni, veg- og brúarhönnun og veglýsingu. Aðalverktakar voru Suðurverk hf sem sá um jarðvinnu og Skrauta ehf sem sáu um brúarsmiðina. Gatnamótin eru sérstök að því leyti að þetta eru fyrstu hringlaga mislægu gatnamótin á Íslandi.
|