ENGLISH
21.08.2008
Viðurkenningar
  FLEIRI MYNDIR
Dagurinn í dag er dagur viðurkenninga fyrir Úti og Inni.

Hann hófst með því að starfsmenn stofunnar mættu um morgunin í hátíðarsal Háskóla Íslands til þess að vera viðstödd verðlaunaafhendingu í opinni samkeppni um stofnun Árna Magnússonar. Þátttaka í samkeppninni var góð en alls bárust 19 tillögur sem allar voru teknar til umfjöllunar. Dómnefnd raðaði þrjár þeirra í verðlaunasæti og keypt þar að auki þrjár aðrar og var ein þeirra tillaga Úti og Inni. Formaður dómnefndar var Sigríður Anna Þórðardóttir og stýrði hún verðlaunaafhendingunni auk menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Í umsögn dómnefndar segir um tillögu Úti og Inni: “.............Ytir áferð er blæbrigðarík. Innra form hússins er í senn fjölbreytt og margbrotið og jafnframt kunnáttusamlega skipulagt. Aðkoma að byggingunni er glæsileg og vatnstenging við Þjóðarbókhlöðu styrkir heildarmyndina. Framsetning er skýr og falleg.........”


Í lok dags var síðan farið í Salinn í Kópavogi þar sem Umhverfisnefnd Kópavogs veitti verðlaun í nokkrum flokkum vegna góðrar hönnunar í Kópavogi árið 2008. Úti og Inni fékk viðurkenningu fyrir hönnun fjölbýlishúss að Tröllakór 12-16. Að verðlaunaafhendingu lokinni var farið í rútuferð og verk verðlaunahafa skoðuð.                      



03.02.2009 Úti og Inni 20 ára!
24.12.2008 Jólakveðja
12.12.2008 Stækkun Bókasafns Hafnarfjarðar - Úrslit
29.11.2008 Opnun mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar
19.02.2008 Leikskóli á Sauðárkróki

ÞINGHOLTSSTRÆTI 27   ::   101 REYKJAVÍK   ::   SÍMI  552 7660   ::   FAX  552 7661   ::   NETFANG  UI@UI.IS

SPUNI ©