19.11.2007
Klikkum ekki á keilunni
Hið árlega keiluáskorunarmót við Landslag var haldið föstudaginn 16. nóvember í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Það er skemmst frá því að segja að Úti og Inni (með liðstyrk sambýlinga okkar, AVH) rakaði að sér öll helstu verðlaun sem í boði voru. Unnum bæði heildarstigakeppnina og vorum með hæsta einstaklingsskorið. Landslag náði að vísu tveimur verðlaunum þ.e. skammarverðlaunin og fyrir mestu tilþrif en það verður svo að vera til þess að drepa ekki niður áhuga þeirra.
|