08.08.2007
Lífræn vökvun í Valencia
Sumarfríum er nú að ljúka og eru starfsmenn að týnast inn til starfa að nýju einn af öðrum. Þeir hafa komið víða við og upplifað margt eins og leðjuslag á Roskilde, lundaveiði í Flatey, chiantidrykkju við Gardavatnið, pústra í Eyjum, sjöjöklasýn frá Snækolli og margt fleira sem við ætlum ekki að tíunda hér. Hins vegar viljum við deila með okkur óvæntri uppgötvun Baldurs þegar hann sat á knæpu fyrir utan heimavöll Valencia á Spáni. Þar sat hann og var að svala þorsta sinn á lífrænt ræktuðum gylltum vökva eftir úrslitaleik Stjörnunnar í 4. flokki karla við Fönix frá Ítalíu. Rak hann þá augun í litglaðan vegg fyrir innan og varð forvitnin sérhlífninni yfirsterkari og fór hann inn til þess að kanna málið. Þegar inn var komið sá Baldur barborð með vegg fyrir aftan skrýddum myndum, veifum og öðrum minningum tengdu spænska landsliðinu í fótbolta. Við nánari athugun kom í ljós að eigandi knæpunnar, Manolo, er opinber stuðningsmaður spænska landsliðsins í fótbolta og hefur ferðast með þeim á undanfarnar sjö úrslitamót heimsmeistaramótsins í knattspyrnu (HM) eða öll mót síðan 1980. I þessum ferðum gistir hann á sömu hótelum og landsliðið í boði spænska knattspyrnusambandsins. Á leikjunum ber Manolo trumbu mikla af miklum eldmóð og ber út boðskap sinn gegn ofbeldi (Violencia NO) með skemmtun og gleði. Fyrir þá lesendur okkar sem vilja fræðast frekar um Manolo og eru ekki haldnir spænskufælni viljum við benda á heimasíðu hans: http://www.manoloeldelbombo.com/
|