ENGLISH
03.02.2009
Úti og Inni 20 ára!
Afmælisbörnin loksins orðin ríkistæk.


1989-2009

Það var árið 1989 - árið sem Berlínar-múrinn féll og kommúnisminn hrundi. Þá gengu þúsundir um götur borga Austur-Evrópu og mótmæltu Stjórnvöldum.

Lýðræðisöfl tóku völdin í öllum löndum hinnar s.k. Austur-Evrópu. Pólland, Ungverjaland, Tékkland, Slóvakía, Rúmenía, Búlgaría o.fl. öðluðust frelsi.

Sóvétríkin fóru út úr Afganistan. Bandaríkin réðust inn í Panama. NATÓ varð 40 ára. Kínverski herinn stóð fyrir blóðbaði mótmælenda á Tiananmen-torgi í Peking. Ayatollah Khomeini lést í hárri elli og George Bush (eldri) tók við af Reagan sem forseti Bandaríkjanna. Ísraelar murka lífið úr Palestínumönnum með aðstoð Bandaríkjamanna.

Þá var núverandi forseti landsins fjármálaráðherra, fjármálaráðherran samgöngu- og landbúnaðarráðherra og fráfarandi fjármálaráðherra var dýralæknir. Forsætisráðherra var félagsmálaráðherra. Félagsmálaráðherra var plötusnúður hjá RÚV. Heilbrigðisráðherra var þá fréttamaður á RÚV en fráfarandi heilbrigðisráðherra var þá sölumaður hjá VÍS. Samgöngumálaráðherra var þá landbúnaðarráðherra en núverandi samgönguráðherra var verslunarstjóri í Rafbæ á Siglufirði. Þá var Jón Ásgeir líka verslunarstjóri hjá pabba sínum í fyrstu Bónusversluninni. Fráfarandi utanríkisráðherra var ritstjóri Veru. Núverandi utanríksráðherra var ritstjóri Alþýðublaðsins og fráfarandi dómsmálaráðherra var ritstjóri á Mogganum. Núverandi dómsmálaráðherra var ekki ritstjóri.

Þetta ár lauk einnig framkvæmdum við stækkun Louvre-safnsins (pýramidinn) í París eftir I.M Pei. Vitra-safnið eftir Frank Gehry opnað sem og Wexner Listasafnið í Ohio eftir Peter Eisenmann.

Þá var Guðmundur Guðmundsson núverandi landsliðsþjálfari, B-heimsmeistari með handboltalandsliðinu. Bjórinn var leyfður á ný. Fyrsta Bónusbúðin opnaði. Seinfeld hóf göngu sína í sjónvarpinu sem og Simpsons og fyrsta Batman-myndin var frumsýnd. Ísland var formlega tengt við Internetið þetta sama ár.

Þetta var líka í síðasta sinn sem sást til hins útdauða Gula frosks eða “Bufo periglenes” eins og hann heitir á latínu. UNESCO lýsti froskinn útdauðann.

Þann 3. febrúar þetta sama ár var jafnframt sett á stofn lítið fyrirtæki á sviði arkitekta Það hlaut nafnið ÚTI & INNI.

Nú er árið 2009 og kapítalisminn fallinn og nýfrjálshyggjan hrunin. Þúsundir ganga um götur Reykjavíkur og mótmæla Stjórnvöldum.

Ísraelar murka enn lífið úr Palestínumönnum með aðstoð Bandaríkjamanna. Blökkumaður stýrir Bandaríkjunum. Hryðjuverkalögum er beitt gegn Íslendingum. Menn berja hver á öðrum út um allan heim – Stjórnmálaleiðtogar koma og fara eins og efnahagur heimsins. Herstöðinni á Miðnesheiði hefur verið lokað.

Og enn stendur Úti og Inni - með báða fætur á jörðinni. Jörðin sem þrátt fyrir allt þetta snýst enn umhverfis sólu, þrátt fyrir allar byltingar, hrun, kreppur og óáran.

Við höfum með öðrum orðum staðið af okkur báðar stefnurnar og gerum ekki upp á milli þeirra svo fremi sem arkitektúrinn fái að lifa.

Við erum sem sé tvítugir og munum leyfa kreppunni að hafa sinn gang. Höldum upp á áfangann með pompi og pragt við betra tækifæri.

Baldur og Jónsi    



24.12.2008 Jólakveðja
12.12.2008 Stækkun Bókasafns Hafnarfjarðar - Úrslit
29.11.2008 Opnun mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar
21.08.2008 Viðurkenningar
19.02.2008 Leikskóli á Sauðárkróki

ÞINGHOLTSSTRÆTI 27   ::   101 REYKJAVÍK   ::   SÍMI  552 7660   ::   FAX  552 7661   ::   NETFANG  UI@UI.IS

SPUNI ©