|
|
 |
 |
| Sýningar |
 |
Icelandic Architecture, 1994. Í tilefni af hálfrar aldar afmæli lýðveldisins 1994 skipulagði arkitektaskólinn í Árósum sýningu um íslenska byggingarlist sem ferðaðist milli Norðurlandanna. Meðal verka á sýningunni var Setbergsskóli í Hafnarfirði og dælustöð við Laugarnes í Reykjavík. Að sýningu lokinni var gefin út bók, Icelandic Architecture, sem fjallar um verk sýningarinnar.
Arkitektabienalinn í Feneyjum, 1996. Úti og Inni var valin til að taka þátt í arkitektabienalnum í Feneyjum árið 1996. Arkitektabienalinn er stærsta einstaka arkitektasýning í heiminum hverju sinni. Sýningin var hluti norrænnar sýningar sem bar yfirskriftina "The New Generation of The North". Þar voru kynntar 4 arkitektastofur frá hverju Norðurlandanna fimm.
|
|
 |
|
 |